The higher the top......

Nú verðum við Íslendingar að taka höndum saman og hjálpa þessu vesalings fólki. Mér dettur helst í hug að fá laugardagsmótmælendurna til að ganga um með samskotabauka, það væri þá kannski hægt að redda greyjunum um íbúð í verkamannabústöðunum, nú eða í versta falli tjaldi í Laugardalnum. Það gengur náttúrlega engan veginn að láta þessar elskur sofa undir berum himni, allavega ekki á þessum tíma árs, þið vitið, kvefpestir, ofkæling og þess háttar, eða vita af þeim með betlibaukinn í höndinni.

Eða hvað?

Nei takk. Nú látum við reyna á miskunnsama Samverjann sem (vonandi ) býr í okkur öllum!

Við tökum okkur saman og hjálpum þessu yndislega fólki, með fallega Colgate brosið sitt svo þau þurfi ekki að kvíða morgundeginum.

Þar til næst.


mbl.is Selja íbúð á Manhattan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband