Þurfa líklega að afskrifa tveggja milljarða lán til lykilstarfsmanna Baugs.

Andri Ólafsson skrifar:

Kaupþing þarf að öllum líkindum að afskrifa tæplega tveggja milljarða króna lán til félags í eigu lykilstarfsmanna Baugs. Sama félag lánaði lykilstarfsmönnunum þrjá og hálfan milljarð króna. BGE er eignarhaldsfélag í eigu eigenda og lykilstarfsmanna Baugs.

Stærstu hluthafarnir eru Jón Ásgeir Jóhannesson fyrrverandi starfandi stjórnarformaður Baugs, Gunnar Sigurðsson forstjóri, Stefán Hilmarsson fjármálastjóri og Skarphéðinn Berg Steinarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Baugs.

Félag þeirra fékk lán frá Kaupþingi með veði í tæplega 2,4 prósenta eignarhlut í Baugi. Lánið var um 1, 4 milljarðar árið 2007 en stendur nú í tæpum tveimur milljörðum en veðið er verðlaust því Baugur var tekinn til gjaldþrotaskipta í síðustu viku.

BGE á engar aðrar eignir til að standa straum af láninu og Kaupþing neyðist því að öllum líkindum til að afskrifa það. Fréttastofa hefur ekki upplýsingar um hvort að lánið liggi í gamla eða nýja Kaupþingi.

Í rekstarreikningi BGE kemur meðal annars fram að félagið lánaði hluthöfum sínum um þrjá og hálfan milljarð í formi skuldabréfa en félagið var rekið um kaupréttakerfi starfsmanna Baugs.

Áfram heldur svínaríið.

Þar til næst.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það er eðli gjaldþota að eignir verða að engu, Jökull, því er tómt mál að tala um að "svínaríið haldi áfram". Blessunarleg, segi ég.

Ragnhildur Kolka, 18.3.2009 kl. 23:34

2 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Hmmm, já, en það er sárt. Skyldi ég geta fengið afskrifuð ca. 20% af íbúðasjóðsláninu mínu?

Þráinn Jökull Elísson, 19.3.2009 kl. 00:00

3 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Verðlaust veð, skellurinn lendir á Kaupþingi og hvað svo næst?

Þráinn Jökull Elísson, 20.3.2009 kl. 18:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband