Að klóra yfir kúkinn úr sér...

...er það fyrsta sem mér kom til hugar eftir að hafa lesið pistla þeirra félaga Róberts Wessman og Björgólfs Thor.

Þvílík tjara.

Nú keppast þeir félagar um að hvítþvo sig af sínum gjörðum og reyna að telja okkur óbreyttum trú um að hvítt sé svart og svart sé hvítt og má segja að í þeim efnum hafi Björgólfur vinninginn, enda greinilega kominn með her á bak við sig í þeim tilgangi að reyna að slá ryki í augu þjóðarinnar og hvítþvo aðgerðir sínar. Sem vel á minnst, enginn heilvita maður tekur mark á.

Athafnir Björgólfs garmsins eru alveg eftir þeirri uppskrift sem Eva Joly varaði okkur við og sú dama veit hvað hún talar um.

Strákbjálfinn byrjar reyndar hálf kjánalega með því að ljúga upp á forseta vorn. Spurning hvort slíkt athæfi komi ekki til með að draga dilk á eftir sér.

Það verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu og ég bíð þeirrar stundar með ofvæni þegar Björgólfur Thor kemur fram í sjónvarpi og grætur sínum krókódílstárum um leið og hann kennir öllum öðrum um sínar misgerðir.

Þá verður fróðlegt að fylgjast með.

Þar til næst.

 

 


mbl.is Varð algjör trúnaðarbrestur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband