Nú er hann skollinn á međ látum aftur.

Fyrir tćpum sólarhring kyngdi hann niđur međ snjó en nú er komin suđvestan átt međ tilheyrandi slabbi.

Ég tók mig til fyrir nokkrum dögum, svona í tilefni prófloka, og ákvađ ađ mála allt húsiđ innan. Í stuttu máli sagt.....ég er allavega byrjađur. Tók mig svo til og fór í hressilegan göngutúr ađ loknum sćmilega löngum vinnudegi til ađ losna viđ málningarlyktina úr nösunum. Fátt er jafn hressandi og góđur göngutúr í grenjandi rigningu. Held bara ađ mér hafi tekist ađ ganga úr mér áhyggjurnar og vonbrigđin eftir hrćringar ţćr sem átt hafa sér stađ í veröld stjórnmálamanna vorra síđustu daga. Ég ćtla ekki ađ fara ađ diskútera pólitík rétt einu sinni enn, veđriđ er of hressandi og gott til ţess. Enn síđur ćtla ég ađ níđa skóna af ţingmönnum okkar. Síđustu daga hefur ţeim tekist slíkt svo ljómandi vel sjálfum...án minnar ađstođar.

Samanber orđaskak Ólínu Ţorvarđard. og hćstvirts forseta Alţingis. Samanber dramađ sem viđ öll urđum vitni ađ ţegar sjónvarpađ var frá Alţingi vantrauststillögu bráđum fráfarandi formanns Sjálfstćđisflokksins.

Svona mćtti lengi telja en gott er. Hins vegar velti ég stundum fyrir mér tilganginum međ öllu ţessu brölti og látum ásamt tilheyrandi "vaxta"verkjum.

Ég velti ţví líka fyrir mér hvort sú hugsjón sem ég reikna međ ađ flestir ţingmanna, í ţađ minnsta ţeir ungu og óreyndu, lögđu upp međ, hafi glatast ţegar viđkomandi uppgötvuđu ađ á brattan var ađ sćkja.

Ég velti ţví líka fyrir mér hvort mannskapurinn hafi ekki gert sér grein fyrir ţví ađ viđ greiddum ţeim atkvćđi okkar í ţeirri veiku von ađ nú yrđu dýrin í skóginum vinir. Í ţeirri veiku von ađ nú ynnu allir saman til ţess ađ leysa úr ţeim vandrćđum sem ađ okkur steđja úr öllum áttum.

Í stađ ţess er dýrmćtum tíma eytt í ađ rífa kjaft.

Stundum getur manni skjátlast.

Nóg er ađ sinni og ţar til nćst.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Takk fyrir prýđilega pistil! Vona ađ ţér takist ađ klára málningarvinnuna sem fyrst.

Mér flug ţessi vísa í hug viđ lesturinn, ţó ekki sé hún merkileg.

Skjátlast  getur skelleggum guma,

 skömm ţó hafi hlutum á.

Stundum mćlir og  fylgir stuna,

stjórnin ćtti ađ fara frá.   

Bergljót Gunnarsdóttir, 16.4.2011 kl. 18:26

2 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Var eitthvađ ađ flýta mér viđ innsláttinn, en ţetta á ađ vera "skömm hann hefur hlutum á"

Bergljót Gunnarsdóttir, 16.4.2011 kl. 18:39

3 Smámynd: Ţráinn Jökull Elísson

Hć Bergljót

Ţráinn Jökull Elísson, 16.4.2011 kl. 20:21

4 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Hć sjálfur

Bergljót Gunnarsdóttir, 16.4.2011 kl. 23:06

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband