11.4.2009 | 18:21
"Við höfum ekkert að fela!!!"
Eftir allt sem á undan er gengið á ég ákaflega erfitt með að trúa þessu .
Hreint út sagt, ég trúi ekki einu orði.
Ekki einu einasta orði.
Er þetta síðasta hálmstráið hjá Sjálfstæðisflokknum, nú tveimur vikum fyrir kosningar?
Sorry guys, þetta kemur alltof seint og þar fyrir utan virkar öll uppsetning málsins einstaklega kjánaleg.
Hafa ber í huga að við sem göngum til kosninga þ. tuttugasta og fimmta næstkomandi erum, burtséð frá því að vera ágætum gáfum gædd, hundleið á því að láta draga okkur á asnaeyrunum endalaust.
Ég get að vísu eingöngu talað fyrir sjálfan mig en Sjálfstæðisflokkinn kýs ég aldrei meir.
Nú vitið þið það!
Þar til næst.
|
Söfnuðu fé fyrir flokkinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



annabjo
baldvinj
bjarnihardar
dullur
brjann
brylli
emilkr
tudarinn
helgi
hildurhelgas
don
kreppan
jonbjarnason
jonmagnusson
kristjanb
larahanna
icejedi
nilli
frisk
roslin
sigurbjorns
sigurjonth
sjonsson
stebbifr
steinibriem
postdoc
vga
taoistinn
omarragnarsson
savar
fhg
gattin
ragnhildurkolka
altice
solir
joiragnars
esgesg
arnorbld
skarfur
beggo3
ding
einarbb
gretarmar
hallibjarna
himmalingur
kht
kliddi
hordurt
ingahel-matur
keli
jennystefania
huxa
tankur
jonlindal
kij
kristjan9
ludvikjuliusson
lydurarnason
martasmarta
svarthamar
solmani
raggag
reynir
rosaadalsteinsdottir
samstada-thjodar
fullvalda
lovelikeblood
segdu
sigrunzanz
siggith
stjornlagathing
athena
svanurg
svavaralfred
saemi7
valdimarjohannesson
icekeiko
disagud
toro







Athugasemdir
"Farið hefur fé betra"
Gusta (IP-tala skráð) 11.4.2009 kl. 18:28
Eru þau súr?
Þráinn Jökull Elísson, 11.4.2009 kl. 18:45
Eftir maraþonfundi í Valhöll í dymbilviku hefði maður getað búist við betri bræðingi.
Kolla (IP-tala skráð) 11.4.2009 kl. 19:37
Hvað áttu svona erfitt með að trúa. Að þessir öðlingar safni fé fyrir flokkinn sinn, að upphæðin hafi ekki verið hærri eða að eyrun á þér séu ekki lengri?
Mundu að árið 2006 voru 30 millur aðeins klink. Þetta er 10x minna en Baugur var tilbúin að borga Davíð og hann blés á það. Áttu þessar 30 millur að kaupa heilan þingflokk og borgarstjórnarflokk?
Come on, Jökull, tókstu ekki eftir að það voru sex-menningarnir í Sjálfstæðisflokknum sem stóðu í lappirnar gegn FL í REI málinu. Þá var það Framsókn, Frjálslyndir, VG og Samfylking sem ætluðu að færa FL-Group fjöregg Reykjavíkur á silfur fati. Hvað áttu þau að fá fyrir sinn snúð eða unnu þau upp á krít?
Þú þarft að hugsa þetta upp á nýtt.
Ragnhildur Kolka, 11.4.2009 kl. 19:39
Ragnhildur; þú snýrð sannleikanum á haus í REI-málinu. Fyrst þig brestur svona minni, skal ég með ánægju rifja upp fyrir þér að SjálfstæðisFLokkur og Framsókn voru í meirihluta í borginni þegar REI-gjörninurinn stóð yfir.
Bjarni Ármanns mætti til heim til Villa að ganga frá "smáatriðum". Það voru svo Svandís Svavars (VG) og Elsa (SF) sem neituðu að skrifa upp á þennan samning. Þær fengu bágt fyrir hjá Sjálfstæðismönnum fyrir "þvergirðingsháttinn". Þegar málið kom fyrir alþjóð varð það vandræðalegt fyrir SjálfstæðisFLokkinn og hann dró í land.
Kolla (IP-tala skráð) 11.4.2009 kl. 20:18
Kolla mín, viltu ekki skoða gögnin þín aftur. Svandís stóð með sex-menningunum en Sigrún Elsa Smáradóttir greiddi atkvæði með REI-gjörningnum.
Trio con mezzo var stofnað til að láta gjörninginn ganga upp. Björn Ingi rauf samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn svo það mætti verða. En á þeim bæ var aldrei nein samstaða um annað en völd og því gekk slaufan ekki upp.
En svo þú velkist ekki í vafa um hlut Sigrúnar Elsu í REI-ævintýrirnu þá er hér smá klippa úr grein sem hún skrifaði í Morgunblaðið ásamt samflokksmanni sínum Degi B. Eggertssyni. Greinin birtist 4 dögum áður en meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsókn féll:
Það er ekki beinlínis að sjá að Sigrún Elsa hafi verið í einhverjum björgunarleiðangri fyrir hönd Reykvíkinga. Hún var að vinna fyrir útrásarráðherrann, Össur Skarphéðinsson, við að koma REI í hendurnar á FL-víkingunum.
Ragnhildur Kolka, 11.4.2009 kl. 22:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.