14.9.2009 | 20:24
Þar kom vel á vonda.
Kröfuhafar Milestone höfnuðu nauðasamningi sem lagður var fyrir þá á fundi í dag til samþykktar eða synjunar. Stærsti kröfuhafinn, Glitnir, sem á um 44 milljarða kröfu í félagið, studdi hinsvegar nauða- samninginn.
Vill Glitnir ekki að fyrirtækið verði gjaldþrota svo hægt sé að fara oní saumana og kanna rekstur þess?
Átti að reyna að fela eitthvað?
Það hlýtur að vera eitthvað brenglað við rekstur fyrirtækis þar sem eytt er hálfum milljarði í einkaþotur.
Það hlýtur líka að vera eitthvað brenglað í hausum eigenda slíks fyrirtækis.
Mér er minnisstætt þegar Karl Wernersson sendi frá sér yfirlýsingu, já og seinna kæru,vegna frétta- flutnings Stöðvar 2 og Vísis þar sem ýjað var að smá+auraflutningum í skattaskjól.
Þar var klausa sem vakti ómælda hrifningu mína.
"Virðist sem fréttin sé alger uppspuni frá rótum, til þess eins fallin að kasta rýrð á nafn og orðspor mitt og félaga í minni eigu."
Þetta er ekki alveg búið enn því hér kemur svo lokahnykkurinn.
". Með umfjöllun sinni hafa sameinaðar fréttastofur Stöðvar 2 og Vísis vegið alvarlega að heiðri mínum."
Er þetta ekki alveg stórkostlegt?
Nafn, orðspor, heiður?
Nú legg ég til að vér bloggarar sameinumst og veljum Karl kallinn brandarakall ársins.
Að lokum, það er bara eitt sem vefst fyrir mér.
Hvern skyldi nú Karl kæra næst?
Þar til næst.
Höfnuðu nauðasamningi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Maður hefur samt áhyggjur af aðkomu Íslandsbanka þar sem sagt er að annar Wernersbróðirinn, Karl ef ég man rétt, mun hafa verið sambýlismaður Birnu „úps skulda ég þá ekki þúsundir milljóna af því enginn ýtti á enter ?“ Íslandsbankastjóra á einhverju tímabili.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 14.9.2009 kl. 20:47
Hann Karl er svo spes, hann þarf örugglega spes meðhöndlun. Hann er svo mikið fórnarlamb!!!
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 15.9.2009 kl. 00:56
Þráinn Jökull Elísson, 15.9.2009 kl. 01:38
Karl er húmorslaus geimvera frá græðgishnetti, sem er bara búinn að læra eitt orðasamband í jarðensku: sú them!
Jenný Stefanía Jensdóttir, 15.9.2009 kl. 07:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.