10.10.2009 | 11:18
Nú er fokið í flest skjól.
Framsóknarbullurnar búnar að verða okkur til skammar úti í Noregi, og var varla á það bætandi.
Hvað verður næst?
Annars heyrist lítið í Höskuldi garminum þessa dagana.
Skyldi engan undra.
En nú er búið að hrekja okkur út í horn. Annað hvort er að borga Icesave reikningana eða...
Undarlegt hve þessu liði, sem við kusum yfir okkur í þeirri góðu trú að þau ætluðu að vinna fyrir okkur, skuli ganga svo illa að leysa þau vandamál sem við okkur blasa.
Hver höndin upp á móti annari.
Hvað varð af hugsjóninni og samheldninni?
Hurfu allar okkar góðu tilfinningar með útrásargræðginni?
Þær eru margar spurningarnar sem leita á hugann.
Þar til næst.
Hærra lán ekki í boði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.