11.10.2009 | 19:08
Það er gersamlega út í hött...
...að, í ljósi þess ástands sem nú ríkir í þjóðfélaginu, eigi dómstólar nú að spara .
Þvert á móti er full ástæða til að auka fjárframlög til þeirra.
Svo ég vitni í einn ágætan bloggara .
"Íslenskir dómstólar hafa oft fellt niður refsingar á undanförnum árum vegna málstafa. Í þeim málum hafa málin yfirleitt tafist á rannsóknarstigi en ekki hjá dómstólum. "
Góð ástæða til að auka fjárframlög til hins íslenska réttarkerfis og þá ekki síst í ljósi þess að enn fjölgar þeim sem komnir eru með stöðu grunaðra í bankamálinu svonefnda.
Nú í dag bættist Sigurður Einarsson í hóp þeirra.
Hvað snertir þann hóp fjárglæframanna sem sett hafa íslensku þjóðina á hausinn á ég þá ósk heitasta að þeir fái nú tækifæri til að setja sig niður í sæmilega þægilegum og (stundum) sólríkum klefum þar sem þeir gætu þá dundað við að rita endurminningar sínar.
Ég er þess fullviss að þar kynni eitthvað athyglisvert að koma í ljós.
Þar til næst.
Dómstólum gert að spara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.