Loksins...

...kom að því að mér hlýnaði um hjartaræturnar.Smile

Frammistaða Jóhönnu Guðrúnar í Evrópusöngkeppninni var til fyrirmyndar. Þetta var jú besta sætið því hefðum við Íslendingar unnið þá hefðum við orðið að grenja á einhverri nágrannaþjóðinni( Noregi? ) til að halda keppnina fyrir okkur.

Við eigum hvort eð er ekki bót fyrir boruna á okkur lengur og að þurfa að betla af einhverri nágrannaþjóðinni hefði verið að bæta skömm ofan á skömm.

En sem sagt: Til hamingju Jóhanna og félagar!

Þar til næst.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Tek undir það. Jóhanna var landi og þjóð til sóma.

Ragnhildur Kolka, 17.5.2009 kl. 20:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband