Við stígum trylltan dans...fyrir þinglok...

Þetta fólk kusum við yfir okkur.

Við Íslendingar erum einstaklega lagnir að verða okkur til athlægis á vettvangi erlendis.

Skrípaleikurinn sem fram fer á Alþingi þessa dagana er bara eitt dæmið í viðbót.

Annars vil ég benda á þá staðreynd að væntanlegar breytingar á stjórnarskránni samræmast fullkomlega þeim tillögum sem Framsóknarflokkurinn lagði fram á sínum tíma.

Sem...samkvæmt málflutningi þeirra undanfarna daga og vikur veldur mér áhyggjum.

Ekki eru höfð mörg orð um Noregsferðina á sínum tíma sem...... þrátt fyrir orð Sigmundar Davíðs um óhóflega skuldasöfnun, já og ekki kæmi til greina að auka við skuldirnar......var ekkert annað en sníkjuferð.

Vonandi, bara vonandi, vex þetta lið upp úr sandkassaleiknum og opnar augu sín fyrir veruleikanum og kannski í leiðinni uppgötvar til hvers þau voru kosin.

Þessari athugasemd minni er beint til allra þeirra sem sitja á Alþingi í dag og um leið vil ég benda háttvirtu liðinu á staðreynd sem virðist hafa farið fram hjá þeim sumum að þau eru ekki æviráðin.

Þar til næst. 


mbl.is Málþófið spillt nýliðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá hugleiðingar svona í miðri viku.

Ég vil biðja þessa fáu og tryggu áhangendur mína afsökunar fyrir letinni. Það er jú mest letinni að kenna að ég hef ekki bloggað.

Það sem kom mér í gang var 3ja mán. dagsetningin hjá Blogggáttinni. Smile

Þegar litið er til baka og það þarf ekki að líta langt þá hefur heilmikið gerst. Ég er allur af vilja gerður en ef eitthvað hefur farið fram hjá mér þá endilega pikkið í mig.

Fyrst má telja þann landskennda "Landsdóm" sem nú ku hafa lokið verki sínu.

Þetta er reyndar í fyrsta skipti í langan tíma sem ég sætti mig við nauðungarafnotagjaldið því það litla sem við höfum fengið að sjá frá réttarhöldunum slær öllum bandarískum sápuóperum við.

Svo er Rúv. að fara yfir lækinn eftir góðu sjónvarpsefni. Nei nei. Við eigum að byrja heima fyrir !!

Frammistaða fyrrverandi forsætisráðherra okkar og viðbrögð eftir dómsbirtinguna sýna og sanna að við  Íslendingar hljótum að vera fæddir húmoristar !!

Reyndar er þetta besta "stand upp" sem ég hef séð í langan tíma.

Spurning hvort ekki sé hægt að selja aðgang.

Nú erum við  að fá nýjan biskup og það kvenbiskup að auki.

Ég er ánægður. Ég er hæstánægður !!

Furðulítið hefur farið fyrir leðjuslagnum en bíða nú...það kemur að forsetakosningum.

Ég óska Agnesi velfarnaðar í sínu nýja embætti.

Senn líður að forsetakosningum og nú munu vera nokkrir sem berjast um bitann. Samkvæmt hefðinni þá er drullukastið byrjað. Ég hef reyndar lúmskt gaman af öllum látunum því allt skal jú tínt til. Nú hefur eiginmaður væntanlegs forseta íslenska lýðveldisins stigið fram og viðurkennt að hafa slæmt höndinni til skólabróður síns í hita leiksins (þetta var á skólaballi ) nú, glóðaraugu og blóðnasir voru bara fylgifiskar sveitaballanna hér áður fyrr. Í það minnsta þegar ég var að vaxa upp hér fyrir vestan. Gæti orðið ögn skemmtilegt að fylgjast með framvindu mála á næstunni. Í það minnsta að kíkja á fb.

Mótframbjóðendur hljóta að koma með eitthvað djúsí til að toppa þetta. LoL 

Síðast þegar ég taldi þá voru komnir sex frambjóðendur. Sem segir mér að fimm frambjóðendur koma til með að sleikja sár sín á meðan þeir velta fyrir sér hvernig í fjandanum þeir eigi nú að dekka kostnaðinn.

Það er ekki gefins að bjóða sig fram til forseta í norræna velferðarsamfélaginu. Það kostar. Og það ku kosta mikið!! Níutíu millur hafa verið nefndar sem þýðir að sveitastrákur að vestan verður að öllum líkindum ekki í framboði. Þetta fer að minna smá á bandarísku forsetakosningarnar en vonandi verður skítkastið ekki svo mikið. 

Lítið annað hefur gerst ef litið er fram hjá þessum hefðbundnu afskriftum á alls slags greifa sem greifast aldrei sem fyrr.

Þrátt fyrir milljarða afskriftir.

Nú gæla menn við hugmyndina um milljarða eignir í erlendum skattaskjólum. Við það fólk vil ég segja að betri er einn fugl í hendi en tíu í skógi.

Blessi ykkur öll og þar til næst.

P.S. Enn verslar Bjöggi jr.


...að höggva mann og annan.

   Eitt og annað hefur gengið á undanfarna daga og væri nóg til að gera hvern manninn vitlausan.

Kolgeggjaðan reyndar.

Þar má nefna innanbæjarrugl Kópavogsbæjarstjórnar þar sem enginn virtist vita í hverja áttina vindurinn blés.

Eftir síðustu fréttum að dæma þá eru málin komin í hring. Íhaldið fellt..íhaldið komið til valda aftur.

Þar til vindáttin breytist.

Nú ber efst á baugi dómur Hæstaréttar um vaxtagreiðslur...löglegar/ólöglegar, og sýnist sitt hverjum. Nú er ég ekki talnafróður maður en hafi ég skilið rétt þá er verið að rukka mig um vaxtagreiðslur af láni sem ég lauk við að borga í árslok 2009. Afturreiknað ?? Ég ætla ekki að nefna bílkaupin einu orði. Borgaði drusluna hérumbil á borðið.

Nú að þeirri gleði sem virðist allsráðandi í búðum ríkisstjórnar vorrar þar sem gengið er í því að sannfæra hvert annað að þessi dómur sé akkúrat það sem þau bjuggust við og allt sé bara gúddí gúddí. Þau vissu þetta jú alltaf. Þrátt fyrir lagasetningu 151/2010.  

Þær þúsundir manna sem misst hafa húsnæði sitt eru kannski á öðru máli.

Nú komum við að því sem kallast "Íslensk réttvísi".

Nú skal höggva.

Sökudólgurinn er fundinn. Forstjóri FME ber alla sökina. Hvaða sök hann ber hefur reyndar ekki verið borið á borð fyrir okkur óbreytta þegna þessa velferðarsamfélags sem við ku lifa í.

Verið er að grafa upp einhverjar ellefu ára athafnir í þeim tilgangi einum, að því mér virðist, að leggja grunninn að áframhaldandi óþverrabrögðum.

Eins og til dæmis að draga til baka ákæru á hendur Geir Haarde...sem hefur verið skrípaleikurfrá A til Ö, á sama tíma og Samfylkingin ákvað að hlífa sínu eigin fólki. Sem er skammarblettur á íslensku réttarfari.

Það er vitað mál að vitnaleiðslurnar gætu komið þeim... sem þessa dagana verma stólana... frekar illa.

Gunnar Andersen hefur komið 77 málum áfram til Sérstaks. Skyldi fara um einhverja ??

Þetta leiðindamál hlýtur að skýrast á næstu dögum og í stað þess að heyra um einhvern feluleik G. Andersen varðandi Aflandsfélög Landsbankans árið 2001, þá fáum við vonandi að heyra eitthvað um feluleik ríkisstjórnarinnar varðandi fjármálafyrirtækin og AGS...sem...eins og komið hefur á daginn...hefur eingöngu snúist um að bjarga bönkunum á kostnað alþýðunnar.

Ég kaus til vinstri á sínum tíma í þeirri góðu trú að við fengjum Nýtt Ísland, þar sem allt kæmi upp á yfirborðið, þar sem hverjum steini yrði velt við.

Kjaftæði !!

Ég sárskammast mín. Fyrir að hafa látið hafa mig að fífli. Í næstu kosningum get ég vonandi bætt ráð mitt svo fremi að fram komi fólk sem hægt er að treysta að standi við orð sín.

Ég vona að þessar hugrenningar mínar komi ekki illa við neinn, nema þá aðila sem eiga það skilið , og óska ykkur öllum góðs svefns.

Þar til næst.


Þegar litið er til baka...

...þá er í rauninni fátt sem stendur uppúr.

Nema þá helst þessi eilífa togstreita sem virðist vera viðloðandi stjórnarflokka okkar.

Nú er verslað með embætti. Sem er reyndar engin nýlunda því slíkt hefur viðgengist frá upphafi lýðveldisins.

Að vísu  hefur staðan breyst frá því að Halldór Sigurðsson reisti sér þann minnisvarða að byggja "Halldóru", brúna sem tók af rúntinn fyrir Borgarfjarðarbotn og hefur án efa margborgað sig.

Í dag, á tímum kreppu og blankheita keppast núverandi stjórnarliðar við að reisa sér minnisvarða.

Ögmundur vill nýtt öryggisfangelsi. Sem kemur til með að kosta tvo komma fjóra milljarða. Gott og vel.Slíkar umræður hafa verið í gangi frá miðjum sjöunda áratugnum.

En er nauðsynlegt að ráðast í slíkar framkvæmdir nú ??

Til er nóg af húsnæði sem mætti nýta, fyrirbils, í stað þess að æða áfram og steypa okkur í enn stjórnlausari skuldir.

Nú skal komið að hugmyndum háttvirts forsætisráðherra okkar sem, burtséð frá ESB kjaftæðinu sem   hefur  kostað okkur á annað hundrað milljónir (á sama tíma og skorið er niður, inn að beini í heilbrigðisþjónustunni).

Nú skal byggja. Stórt skal það vera. Flott skal það vera.

Sjúkrahús skal það vera.

Fáránleikinn er þvílíkt yfirgengilegur að ég velti fyrir mér hvort ekki sé kominn tíminn á "retirement" á viðkomandi.

Að gjörbylta öllu 101 hverfinu til þess að byggja og byggja meira er að mínu mati út úr kortinu.

Flogið hafa fyrir tölur upp á 50 (fimmtíu) milljarða sem, NB. ekki eru til. Burtséð frá þeirri staðreynd þá sýna allar fjárhagsáætlanir Lsp. framúrakstur uppá 20 %.

Minnisvarðinn eftir mannskapinn kemur til með að verða aukinn skuldabaggi sem samkvæmt hefðinni lendir á herðum þeirra sem minnst mega sín.

Þá er betur heima setið.

Blessi ykkur öll á þessum versnandi tímum og þar til næst.


Ég óska ykkur öllum...

...gleðilegs nýs árs. Í þeirri veiku von að nú fari að létta til..

Gleðileg jól.

Kæru vinir nær og fjær. Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla,Til mínar föroysku vinir segi eg eisini gleðileg jól. skjahvila2

Af skötuveislu og fleira.

Það er komið að því aftur.

Skötuveislan er á fullu og skatan frá í fyrra er alveg stórkostleg.

Ég finn ekkert fyrir einsemdinni hér í sumarbústaðnum þegar ég er að gadda í mig skötuna, með hamsatólg og öllu tilheyrandi.

Kannski smá harkalegt af nágrönnunum að heimta að ég æti skötuna út í sveit...sem sýnir mér að sumt fólk kann ekki gott að meta.

Ég vil reyndar koma því á framfæri að fólksflóttinn úr sveitunum er er hvorki mér eða skötunni að kenna.

Á meðan ég var að stappa í mig dásemdinni bárust mér þvílíkt stórkostlegar fréttir að við lá ég yrði kjaftstopp.

Það á að leiðrétta laun okkar háttvirtra.

Við þurfum sem sagt ekki að óttast ótímabær dauðsföll okkar háttvirtra, sem sumir hverjir hafa , samkvæmt orðum efnahagsráðgjafa hrunstjórnarinnar, orðið að borga með sér.

Í onálag á víst að taka til endurskoðunar lífeyrisréttindi liðsins, sem sýnir mér að réttlæti fyrirfinnst hér enn.

Það væri ótækt að ætlast til að fólk sem hefur fórnað sér í þágu hins norræna velferðarsamfélags þurfi svo að draga fram lífið á einhverjum skíta lífeyri.

Nú er komið að háttatíma hjá þeim gamla.

Blessi ykkur öll og góða nótt.


Senn líður að jólum.

nytt_1127358.jpg Þegar litið er til baka er sosum ekki mikið sem stendur upp úr.

Fyrir utan hvert skattlagningarklúðrið á fætur öðru.

Það rifjast upp fyrir mér mörg orð sem viðhöfð voru þegar núverandi stjórn tók við. Orð sem reyndust jafn innantóm og" kötturinn í tunnunni."

Allt er á uppleið, samkæmt væntingum AGS. Að vísu gleymist eitt smáatriði en það er almúgi þessa lands sem nú hefur orðið að axla byrðar manna sem fóru fram úr sér og þáðu ofur-laun (sjálfskömmtuð?) sökum þeirrar ofur-ábyrgðar sem þeir þurftu að axla á mis-sterkum herðum.

Skjótt skipast veður í vindi og nú , í stað þess að beita allri orku og ráðast að rótum vandans, þ.e. að byggja upp mannvænlegt samfélag, var ákveðið að setja á svið skrípaleik, fólginn í því að finna sökudólg.

Fjórum var stillt upp við vegg, einn fannst. Það þarf varla að taka fram að stjórnarliðar sýknuðu sína en ákváðu að hengja andstæðinginn.

Skrípaleikur frá upphafi til enda.

Annað hvort allir eða enginn.

Eitt af mýmörgum dæmum sem sýna okkur þóknunarlund hundsins í garð húsbóndans.

Ég er einn af þeim sem kaus til vinstri í þeirri von að nú myndi létta til því kosningaloforð sem : "Allt upp á yfirborðið, gagnsæi, hverjum steini skal velt við " og áframhaldandi...dundu á okkur hvern dag. 

Vel væri ef staðið hefði verið við stóru orðin.

Mér eru minnisstæð orð bráðum fyrrverandi forsætisráðherra okkar er hún lýsti því yfir að ekki yrði hróflað við kjörum aldraðra og öryrkja.

Þann 1. jan. sl. var lífeyrir okkar frystur.

Ég minnist líka orða háttvirts þáverandi félagsmálaráðherra (stuttráðnum) er hann lýsti því yfir að samræmdir yrðu tekjumöguleikar aldraðra og öryrkja.

Ég bíð enn eftir efndunum.

Ég er vonsvikinn. Ég er líka orðinn bálvondur því ég hef verið hafður að fífli.

Ég er ekki sáttur við slíkt.

Enda kem ég til með að ráða fram úr slíku. Án gylliboða og falsloforða.

Það sem ég hræðist þó er að endurnýjun innan 4-flokkanna er lítil sem engin.

Enn og aftur þenur háttvirtur efnahagsráðgjafi hrunstjórnarinnar kjaft og , burtséð frá öllu öðru, grenjar yfir lágum launum (efrimillistéttarelítan...) og , er að því mér virðist, kominn með styrkþegann Guðlaug Þór í taum. Sem kemur sosum ekki á óvart. Eftir höfðinu dansa......

Hvað er til ráða ??

Nýtt stjórnmálaafl ??

Góð hugmynd sem gæti lukkast ef ekki væri fyrir þá áráttu Íslendinga að vilja vera efstir. Burtséð frá hæfileikum og öðrum góðum eiginleikum.

Útlitið er ekki gott en ég ætla ,svona rétt í lokin, að kveðja með mynd sem erfinginn (eins og það verði nokkuð að erfa) var að senda mér.

Blessi ykkur öll og með vonandi tíð ...

 

 

 

 

 

 

 


Hverjum skal trúa nú ??

Nú ber Gylfi vinur okkar Magnússon til baka þær fréttir að hann hafi hækkað laun stjórnarmanna í Fjármálaeftirlitinu og kennir um illum tungum. 

Sem kemur mér reyndar ekki á óvart.

Það er svo íslenskt. Þ.e. þetta með rógburðinn.

Ég gleypti við fréttinni enda gat ég ekki annað. Ég las hana í einu "virtasta" dagblaði landsins...Morgunblaðinu.

Sem sýnir mér að svo bregðast krosstré sem önnur tré.

Ég bið Gylfa Magnússon innilega afsökunar hafi ég haft hann fyrir rangri sök, en, nú að öðru því af nógu er að taka.

Nú er allt í hálofti innan ríkisstjórnarinnar vegna væntanlegra "kaupa" Kínverjans á eyðilendinu þarna einhversstaðar upp á hálendinu og sýnist sitt hverjum. Ekki treysti ég mér til að leggja dóm á það sem þar að gerast en bendi þó á að þar sem við Íslendingar horfum fram til morgundagsins...sumir hverjir...þá horfa Kínverjar fimmtíu til eitt hundrað ár fram í tímann.

Sem er sosum í lagi mín vegna því þá verð ég löngu dauður.

Svo kemur hér áhugaverð klausa :

"Fjármál Álftaness eru í ólestri eftir óstjórnina 2006 - 2009 en með framlagi frá ríkinu og afskriftum lánardrottna......" sem sagt allt í kolarúst en enginn hefur verið látinn svara til saka fyrir óráðsíuna og fjármálafylleríið.

Mér leikur hugur á að vita hvað veldur því.

Breiðavíkurdrengurinn Lalli Jones var gripinn með skinkubréf í vasanum sem hann hafði gleymt að borga, maðurinn var jú bara svangur, og uppskar þar með frítt fæði og húsnæði, en þeir sem bruðla með almenningsfé ?? Skulu þeir ekki borga ??

Svona rétt í lokin kemur hér tilvitnun í smá frétt frá háttvirtu Alþingi sem rennir stoðum undir þann grun minn að ekki sé allt í lagi á þeim bænum.

Um er að ræða orð háttvirts efnahags- og viðskiptaráðherra okkar, háttvirts Árna Páls Árnasonar þar sem hann gagnrýnir fjármálaeftirlitið fyrir að afgreiða ekki kostnaðarmat á frumvarpi um eftirlitsgjald sem rennur til Fjármálaeftirlitisins.

O, jæja þetta er fólkið sem þjóðin kaus yfir sig en mikið yrði nú ánægjulegt að fá einhverjar jákvæðar fréttir. Rétt si svona til að lyfta upp huganum. Nóg er komið af því neikvæða.

Blessi ykkur og þar til næst.

 

 

 

 


Nei takk. Nú er nóg komið.

Eru háttvirtir stjórnarliðar okkar gjörsamlega gengnir af göflunum ??

Augljóslega  hefur fram hjá þeim að hér ríkir kreppa.

Í það minnsta hjá þeim sem minnst mega sín.

Megi sá algóði vernda okkur og hvað hin varðar þá skulum við bara

láta þau eiga sig.

 


mbl.is Hækkaði stjórnarlaun um 77%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband