Sinnaskipti?

Ég er búinn að kynnast alveg yndislegri konu.

Hún er smá ákveðin en það venst örugglega. Vona ég.

Hér er smá sýnishorn af samræðum okkar.

Jökull, þú varst búinn að lofa  að ryksuga.

"Já en...

Þú ætlaðir líka að skúra stigaganginn og vaska upp og setja í þvottavélina og...

"Já en...

Þú ætlaðir líka að skipta á rúmunum og sækja málningu á stofuna...

"Já en...

Jökull!!! Ég er búin að eyða deginum í að kenna grislingum að syngja, krökkum sem hafa engan áhuga á að læra og þegar ég kem heim þá finnst mér alveg lágmarkið að þú sért þó búinn að læra nóturnar sem ég setti þér fyrir.

Þegar hér var komið sögu ákvað ég að halda kjafti og klára að ryksuga já og skúra stigaganginn.

Hver veit, kannski tek ég mig saman og fer að rifja upp nóturnar.

Allt fyrir friðinn.

Þar til næst.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Til lukku, og gleðilega páska. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 3.4.2010 kl. 02:30

2 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Sömuleiðis Kolla mín.

Þráinn Jökull Elísson, 3.4.2010 kl. 03:30

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Til lukku með hvað?

Ragnhildur Kolka, 3.4.2010 kl. 10:00

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já Jökull, þær eru venjulega erfiðastar fyrst en svo lagast það þegar maður hefur lært að hlíða.

Ef maður er hlíðin þá eiga þær það til að vera alveg ágætar, en það getur breist eins og hendi sé veifað. 

Þær hugsa nefnilega með báðum heilla hvelunum sem hlítur að vera mjög flókið.  Ég á nú alveg nóg með að hugsa með öðru.

Hrólfur Þ Hraundal, 3.4.2010 kl. 12:53

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

Notaleg færsla

Finnur Bárðarson, 3.4.2010 kl. 17:21

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Straejk! Ekkert minna my friend! Svona laetur madur ekki koma fram vid sig! Í besta  falli haegt ad fresta thessu ollu til morguns. Já elskan....vonlaus.

Halldór Egill Guðnason, 7.4.2010 kl. 03:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband